Friday, February 16, 2024

NÁTTÚRA/AÐ VERA


Ég sýni hér í Hannesarholti verk úr myndröðinni IN MEMORIAM ásamt verkum úr myndröð sem spratt fram á tímum COVID. Þau verk eru unnin í Frakklandi og tengjast eldri verkum mínum, en ég slasaðist í Frakklandi og var strandaglópur í COVID, ef einhver man ástandið í Evrópu á þeim tíma. Öll verkin eru til sölu. Máluð mynd er miklu meira en bara máluð mynd, myndlistin snýst ekki bara um tækni, það verður líka að nema og skynja, sem kemur á undan því vitsmunalega til að geta notið listar. Ég hef alltaf unnið út frá hinum ýmsu víddum í náttúrunni, að gera það ósýnilega sýnilegt og fylgja innsæi og tilfinningum. Náttúruöflin eru sterk og eyðandi og stjórna líðan okkar og veruleika með öllum sínum kröftum og ofbeldi en sömu lögmál virðist gilda á öllum sviðum tilverunnar. Öll mín verk eru einhverskonar fórn til lífsins því bæði menntun mín og starf undanfarna hálfa öld sem listamaður hefur snúist um allt annað og miklu stærra en sölu, markað, markaðssetningu eða vinsældir. Þetta hafa verið viðbrögð mín við skynjun á einhverju sem er svo sterkt að þú leggur líf þitt í tjáningu sem þú skilur ekki en finnur fyrir svo sterkt, eitthvað handan lífs og allt um kring. Allt sem við gerum hverfur og það er einnig með þessa fórn mína, við rotnum og verðum að næringu fyrir næstu ögn, grotnum niður og hverfum í tómið

Listmálarinn Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur unnið sem myndlistarmaður um hálfa öld en 48 ár eru frá fyrstu sýningu hennar í London. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í frjálsri myndlist/ grafík árið 1974. Masternám við Central Saint Martin’s College of Art í London árin 1974 til 1976. Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í grafískri hönnun árið 1984. Diplóma frá Kennaraháskólanum árið 1997. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Einn af stofnendum Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM. Verk eftir hana eru í eigu helstu listasafna landsins. Hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Félagi í FÍM, Íslensk Grafík, SÍM, Nýlistasafninu. Margrét hlaut norræn vatnslitaverðlaun á þessu ári. The Winsor & Newton Prize. Verðlaun Norræna Vatnslitafélagsins/Col Art The Nordic Watercolor Association Prize 2023. Nánari upplýsingar um Margréti: http://mjons.blogspot.com https://www.instagram.com/mjons_artist/ https://www.arkiv.is/art/artist/276 https://www.facebook.com/margretjonsdottir.art https://www.facebook.com/margretjonsdottir.is/ Netfang: margret_jons@hotmail.com Sími: 847 8634