Nokkrar myndir frá einkasýningunni Landslagsmyndir í FímSalnum 1992. Verk unnin á árunum 1990-1992 og m.a á vinnustofu í Sveaborg 1991
Stöðug listsköpun ásamt fullri vinnu við listkennslu, að sá fræjum í næringasnauðan jarðveg er lýjandi og ávísun á einangrun því tíminn fyrir fjölskyldu og vini er bara ekki til staðar. Það er að verða ansi þröngur stakkurinn sem sniðinn er að listamönnum á landinu okkar og þar eru fullorðnar einhleypar konur verst settar. Langur ferill, stöðugt sýningarhald og góðar umfjallanir hafa ekkert að segja ...