Monday, August 21, 2017

2013 Undir Berum Himni, Listahátíð

 Undir berum himni 25.05 - 25.08.2013
Verkið IN MEMORIAM http://undirberumhimni.is/ Verkið sem ég sýni hér er brot úr myndröðinni IN MEMORIAM sem ég sýndi árið 2009 í START ARTlistamannahús sem var á Laugavegi 12b. Eftirfarandi texti er úr sýningarskránni: "Myndröðin sem ég sýni hér, er brot úr myndröðinni IN MEMORIAM sem hefur verið nokkur ár í vinnslu með mismunandi tilbrigðum. Þegar ég hóf að vinna verkin á þessari sýningu notaði ég persónulegt drasl náinna ættingja minna þegar þeir lágu banaleguna. Sýningin er því brot af ævistarfi fjölskyldu minnar, myndhöggvaranna Guðmundar og Jóns Benediktssonar en þeir upplifðu að sjá mikið af starfi sínu skemmt og lenda á öskuhaugunum enda ekki fjárfestar að gæta hagsmuna. 
 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2013, styrkt af Reykjavíkurborg og unnin í samstarfi við Nýló. Sjá: http://undirberumhimni.is/