Margrét er fædd í Reykjavík 1953 og stundaði nám við við Myndlista og handíðaskóla Íslands og er með diplómu í frjálsri myndlist, diplómu í grafískri hönnun, masternám við Central Saint Martins College of Art and Design í London og diplomu frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur unnið í flesta miðla myndlistarinnar enda með langa og víða menntun á mörgum sviðum ásamt margra áratuga reynslu. Margrét hefur starfað að myndlist í rúm 40 ár og haldið á fimmta tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Stundað kennslu við grunnskóla og Myndlistarskóla Kópavogs, unnið við grafíska hönnun og rekið auglýsingastofu, einnig gert upp nokkur hundruð ára hús í Frakklandi. Rekið nokkur gallerí og var m.a. einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún tók einnig þátt í stofnun Hagsmunafélags myndlistarmanna sem var undanfari Sambands íslenskra myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir m.a. um verk Margrétar: „Óhætt er að segja að viðhorf Margrétar Jónsdóttur til myndlistar hafi sjaldan rúmast innan ráðandi sjónarmiða í hérlendu myndlistarumhverfi til þess er henni einfaldlega of mikið niðri fyrir. Með tjáningu þessara viðhorfa hefur hún iðulega staðið berskjölduð og fullkomlega tillitslaus og jafnframt fullkomlega heiðarleg - gagnvart sjálfri sér og áhorfendum.“